Nemendur í framhaldsskólum landsins fá fræðslu um lífeyrissjóðakerfið fyrir tilstilli samstarfs Landssamtaka lífeyrissjóða og ASÍ. ASÍ hafa undanfarin ár boðið upp á fræðslu í framhaldsskólum um réttindi og skyldur á vinnumarkaði, lestur launaseðla o.fl.
Myndbandið "Lífeyrissjóðakerfið á 90 sek" er fræðslumyndband sett fram á léttan og skemmtilegan hátt og hefur það vakið mikla lukku hjá þessum aldurshópi.
Myndbandið er einnig aðgengilegt á ensku og pólsku. Sjá neðar.